Á Arlanda flugvellinum (på isländska)
Á Arlanda flugvellinum
Áslaug frá Íslandi og Chelina frá Danmörku hittast fyrir tilviljun á Arlanda flugvellinum.
Áslaug: Afsakið, ertu ekki Chelina frá Danmörku? Við vorum báðar á ráðstefnu í Helsinki fyrir nokkrum árum.
Chelina: Jú, það passar. Ég man líka eftir þér! Við bjuggum á sama hóteli. Hvernig hefur þú það?
Áslaug: Ég hef það bara fínt, takk! Við fluttum í nýtt hús fyrir skemmstu. Hvað er að frétta af þér?
Chelina: Allt fínt. Ég var að byrja í nýrri vinnu og líkar mjög vel. Það er hvetjandi að takast á við ný verkefni.
Áslaug: Já, einmitt. Hvar ertu að vinna núna?
Chelina: Heyrðu, eigum við að fá okkur kaffi og setjast aðeins niður?
Áslaug: Já, við skulum gera það!
Áslaug og Chelina fara að afgreiðsluborðinu og panta sér kaffi og með því.
Afgreiðslustúlkan: Hvað má bjóða ykkur?
Chelina: Ég ætla að fá kaffi og rúnnstykki með osti.
Áslaug: Ég ætla að fá te og kökubita. Ég borga. Hvað er það mikið?
Afgreiðslustúlkan: Það eru 12 evrur. Borgar þú í reiðufé eða með korti? Ábót er innifalin í verðinu.